spot_img

Raggi Nat til Hauka

Miðherjinn Ragnar Nathanealsson er genginn til liðs við Hauka og mun leika þar á næsta tímabili. Hann kemur frá Val þar sem hann hefur leikið síðustu tvö tímabil.

Ragnar skrifar undir tveggja ára samning við Hafnarfjarðarfélagið sem endaði í 6. sæti efstu deildar er deildinni var slaufað vegna Covid-19 faraldursins.

Á Facebook síðu Hauka segir Raggi: „Ég er virkilega spenntur fyrir næsta tímabili hjá Haukum. Ég hef ég haft mikinn áhuga á að vera undir handleiðslu Israel Martins frá því hann byrjaði að þjálfa á Íslandi. Einnig er ég mjög spenntur að fá að vinna áfram með Sævaldi Bjarna,“ segir Ragnar og þrátt fyrir að hafa aldrei leikið með Haukum þekkir hann vel til leikmanna liðsins. „Ekki skemmir að ég þekki, að einhverju leiti, allan kjarnann. Ég hef verið í landsliðsverkefnun með þeim öllum, bæði unglinga- og A-landsliðs. Það er mikill metnaður hérna á Ásvöllum og ætlum við að gera tilkall í alla titla sem eru í boði. Ég get því ekki verið annað en sáttur með að hafa gengið til liðs við Hauka.“

Ragnar hefur leikið með Þór Þ, Hamri, Njarðvík og Val hér á Íslandi auk dvala í Svíþjóð og á Spáni. Hann er því orðin ansi reynslumikill og bætir því við reynslu í lið Hauka.

Israel Martin segir um komu Ragga: „Við erum að fá ákveðna reynslu í Ragnari og hann mun án efa hjálpa leikmönnum á borð við Breka og Yngva að vaxa og öðlast meiri reynslu. Þarna erum við komin með leikmann sem ver hringinn, tekur fráköst og ég er mjög glaður að hafa hann í Haukum. Við munum sjá vel um hann.“

Fréttir
- Auglýsing -