spot_img
HomeFréttirRæðst í kvöld hvort Stjarnan eða Valur fari í IE deildina

Ræðst í kvöld hvort Stjarnan eða Valur fari í IE deildina

14:00 

{mosimage}

Oddaleikur Stjörnunnar og Vals í 1. deild karla fer fram í kvöld í Íþróttahúsi Kennaraskólans og hefst leikurinn kl. 19:15. Staðan í einvíginu er 1-1 eftir sinn hvorn heimasigur liðanna og því oddaleikur sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu. Úrslitakeppnin í 1. deildinni hefur verð gríðarlega spennandi en báðir leikir Vals og Stjörnunnar hafa verið miklar skemmtanir.

 

Fyrsta leik liðanna lauk með 80-77 sigri Vals eftir æsispennandi lokamínútur. Annar leikur liðanna fór fram í Ásgarði þar sem Stjarnan hafði svo öruggan 85-70 sigur. Ben Bellucci og Zachary W. Ingles hafa verið í eldlínunni hjá liðunum en Ben gerði 25 stig og tók 9 fráköst fyrir Stjörnuna í öðrum leik liðanna í Garðabæ. Zachary átti stórleik gegn Stjörnunni í fyrsta leiknum þar sem hann setti upp þriggja stiga sýningu og lauk leik með 39 stig.

 

Þá hafa þeir Ragnar Steinsson, Val, og Sigurjón Lárusson, Stjörnunni, einnig verið áberandi svo gera má ráð fyrir alvöru slag í Íþróttahúsi Kennaraskólans í kvöld.

 

Mynd: [email protected]Frá fyrsta leik liðanna í Kennaraskólanum.

Fréttir
- Auglýsing -