Pieti Piokola, þjálfari Tindastóls sagði í stuttu spjalli við Hjalta Árnason í lok leiks gegn FSu að engar óvæntar uppákomur hafi átt sér stað í þessum leik. FSu sé andlega sterkt lið sem hafi unnið sig aftur inn í leikinn í fjórða hluta en góður kafli í lokin hafi skilað sigrinum heim.