Undir 20 ára karlalið Íslands lagði Svíþjóð í kvöld í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu í Södertalje. Eftir fremur erfiða byrjun náði Ísland ágætis tökum á leiknum fyrir lok fyrri hálfleiks. Heimamenn í Svíþjóð gerðu þó álitlega tilraun undir lokin til þess að gera lokamínútuna spennandi, en allt kom fyrir ekki, íslenska liðið stóð það af sér og sigraði að lokum, 70-90.
Karfan spjallaði við Pétur Már Sigurðsson þjálfara Íslands eftir leik í Södertalje.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil