Haukur Helgi Pálsson er mættur á parketið á nýjan leik en hann klukkaði sínar fyrstu mínútur í Subwaydeildinni í kvöld þegar Njarðvík valtaði yfir Vestra. Lokatölur 98-69 í leik þar sem Njarðvíkingar voru við stýrið frá upphafi til enda.
Karfan spjallaði við Pétur Már Sigurðsson þjálfara Vestra eftir leik í Ljónagryfjunni.