Fyrsta grannaglíma Njarðvíkur og Keflavíkur í úrvalsdeild karla í IceMar-Höllinni fór fram í kvöld þegar fjórtánda umferð Bónus-deildar hóf sína göngu.
Skemmst er frá því að segja að Njarðvíkingar höfðu 107-98 sigur í litríkum og fjörugum leik þar sem Evans Ganapamo fór hamförum og skoraði 44 stig fyrir Njarðvíkinga! Hjá Keflavík var Ty-Shon Alexander atkvæðamestur með 22 stig.
Karfan spjallaði við Pétur Ingvarsson þjálfara Keflavíkur eftir leik í IceMar höllinni.