spot_img
HomeFréttirPavel og Margrét Kara valin best

Pavel og Margrét Kara valin best

Nú rétt í þessu var kunngert á lokahófi KKÍ hverjir þóttu hafa skarað fram úr í vetur í Iceland Express deildum karla og kvenna.
 
Það ríkir mikil stemning hjá körfuboltafólki á Broadway enda stórskemmtilegur vetur að baki sem og 50 ár í glæsilegri körfuboltasögu.
 
Eftirtalin verðlaun voru veitt fyrir keppnistímabilið 2010-2011:
Prúðasti leikmaðurinn í Iceland Express-deild kvenna: Hildur Sigurðardóttir – KR
Prúðasti leikmaðurinn í Iceland Express-deild karla: Ægir Þór Steinarsson – Fjölnir

Besti erlendi leikmaður Iceland Express-deild kvenna: Jacquline Adamshick – Keflavík
Besti erlendi leikmaður í Iceland Express-deild karla: Marcus Walker – KR

Besti varnarmaðurinn í Iceland Express-deild kvenna: Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir – KR
Besti varnarmaðurinn í Iceland Express-deild karla: Hörður Axel Vilhjálmsson – Keflavík

Besti ungi leikmaðurinn í Iceland Express-deild kvenna: Bergþóra Tómasdóttir – Fjölnir
Besti ungi leikmaðurinn í Iceland Express-deild karla: Ægir Þór Steinarsson – Fjölnir

Besti leikmaður úrslitakeppni kvenna: Pálína Gunnlaugsdóttir – Keflavík
Besti leikmaður úrslitakeppni karla: Marcus Walker – KR

Besti dómari Iceland Express-deildum: Sigmundur Már Herbertsson

Besti þjálfari Iceland Express-deild karla: Hrafn Kristjánsson – KR
Besti þjálfari Iceland Express-deild kvenna: Jón Halldór Eðvaldsson – Keflavík

Úrvalslið Iceland Express deildar kvenna:
Pálína Gunnlaugsdóttir – Keflavík
Margrét Kara Sturludóttir – KR
Birna Valgarðsdóttir – Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir – Keflavík
Ragna Margrét Brynjarsdóttir- Haukar

Úrvalslið Iceland Express deildar karla:
Pavel Ermolinskij – KR
Hörður Axel Vilhjálmsson – Keflavík
Brynjar Þór Björnsson – KR
Jón Ólafur Jónsson – Snæfell
Sigurður Gunnar Þorsteinsson- Keflavík

Besti leikmaður Iceland Express-deildar kvenna: Margrét Kara Sturludóttir – KR
Besti leikmaður Iceland Express-deildar karla: Pavel Ermolinskij – KR

 
 
 
Kolbeinn Pálsson fékk heiðurskross KKÍ fyrir sín miklu störf fyrir KKÍ síðustu áratugi og er Kolbeinn fjórði sem fær þennan mikla heiður. Áður höfðu Bogi Þorsteinsson, Einar Ólafsson og Einar Bollason fengið heiðurskross KKÍ.

Rögnvaldur Hreiðarsson, Þóra Melsteð og Ágúst Kárason fengu öll silfurmerki KKÍ fyrir óeigingjarnt starf í gegnum árin og eru vel að þessu komin.

Stöð 2 Sport og Iceland Express fengu sérstakar viðurkenningar fyrir sinn þátt í þeirri uppbyggingu sem hefur verið á körfuboltanum sl. ár.

 
Myndir koma á eftir
Fréttir
- Auglýsing -