spot_img
HomeFréttirPat Riley og Danny Ainge skiptast á orðum

Pat Riley og Danny Ainge skiptast á orðum

 Pat Riley hin vel greiddi framkvæmdarstjóri Miami Heat og Danny Ainge framkvæmdarstjóri Boston hafa átt í orðaskiptum nú síðastliðna daga.  Upptök þessara orðaskipta urðu þegar Danny Ainge tjáði sig í útvarpi í Boston um að Lebron James hefði ekkert til síns máls þegar kvartaði yfir dómurum í leik Heat og Chicago sem Bulls unnu og enduðu 27 leikja sigurgögnu Miami.  ” Mér fannst dómararnir hafa staðið sig vel og að það var ekkert til í þessu sem Lebron sagði um dómara leiksins. ” sagði Ainge.  
 
Pat Riley heyrði augljóslega af þessum ummælum og lét hafa eftir sér að Danny Ainge ætti nú bara að “Halda kj… og einbeita sér að því að stjórna sínum klúbbi. Hann var einn mesti vælarinn þegar hann var að spila á sínum tíma og ég vel eftir því vegna þess að ég þjálfai gegn honum. ” sagði Riley.
 
Danny Ainge var á sínum tíma þekktur fyrir það eitt að elska það að vera hataður af stuðningsmönnum hinna liðanna.  Hann sagði því eftir þessi ummæli Riley að hann stæði við það sem hann sagði og að Riley hefði rétt á sínum skoðunum.  Ainge lét heldur ekki þar við liggja heldur henti einu skoti tilbaka á Riley. “Ég myndi ekki vilja eyðileggja Armani jakkafötin hans og greiðsluna, það yrði mér líklega afar dýrt.”  
Fréttir
- Auglýsing -