Það ætti svo sem að koma fáum á óvart að Haiden Palmer er Lykilmaður leiksins í kvöld þegar hún fór langt með það á eigin spítur að tryggja liði Snæfell farseðil í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Dominosdeild kvenna á þriðjudaginn nk. Palmer fór hamförum þegar hún skoraði 35 stig og sendi 7 stoðsendingar ásamt því að taka 6 fráköst.