Þrátt fyrir skakkaföll í leikmanna hópi Njarðvíkinga þá hafa þeir aldeilis hellt barmafullt í skálar reynslunar því Páll Kristinsson fyrrum leikmaður þeirra er mættur í búning og leikur með liðinu í kvöld gegn Haukum. Páll spilaði fjölda ára með Njarðvík og nokkur í Grindavík og var alltaf traustur póstur í leikjum beggja þessara liða. Páll hefur verið að spila með B liði Njarðvíkur síðustu ár og því alls kostar ekki algerlega úr leikreynslu en mögulega vantar eitthvað uppá pústið.