spot_img
HomeFréttirPáll Axel og Páll Kristinsson áfram í Grindavík

Páll Axel og Páll Kristinsson áfram í Grindavík

{mosimage}

Páll Kristinsson verður áfram með körfuknattleiksliði Grindavíkur á næstu leiktíð en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Á heimasíðu Grindavíkur kemur fram að bæði Páll Kristinsson og Páll Axel Vilbergsson verði áfram hjá Grindavík á næstu leiktíð.

Önnur leikmannamál í herbúðum Grindavíkur eru til skoðunar eins og sakir standa en koma ekki í ljós fyrr en að loknu ársþingi KKÍ um helgina þegar ákvörðun um leyfilegan fjölda erlendra leikmanna verður tekin.

Frétt og myndir af www.vf.is

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -