NY Knicks sem hafa nýlokið við að klára sína fyrsta seríu í úrslitakeppni síðan árið 2000 voru varla búnir að fagna þeim áfanga þegar þeir fengu spræka leikmenn Indiana Pacers í heimsókn í Madison Square Garden. Lið Indiana var í bílstjórasætinu mest allan leikinn og kannski fæstir bjuggust við því að þeir myndu ná að klára dæmið og síst þegar Carmelo Anthony fór í gang í fjórða leikhluta. En þeir gulklæddu héldu út og sigruðu 102:95 og hafa því stolið heimavallarréttinum í þeirri seríu.
Anthony með 27 stig og 11 fráköst fyrir NY en kappinn lenti í villu vandræðum og spila lítið í þriðja leikhluta. Hjá jöfnu liði Indiana var það David West með 20 stig og næstur honum Paul George með 19 stig, en miklu munaði um framlag frá DJ Augustine af bekknum en hann smellti 16 stigum á Knicks þetta kvöldið.