spot_img
HomeFréttirÓvíst hvaða Kobe búningur fer í rjáfurnar

Óvíst hvaða Kobe búningur fer í rjáfurnar

 

Nú þegar er hafinn umræða um hvor Kobe Bryant búningurinn verði hengdur í rjáfur Staples Center þegar goðið lætur af störfum endanlega.  Kobe spilaði bæði í treyju númer 8 og svo 24.  "Við höfum hist í stjórninni og rætt þetta lauslega. Nú þegar hann hefur gefið út að þetta sé hans síðasta tímabil förum við líkast til af meiri krafti í þessa umræðu" sagði óþekktur forráðamaður Lakers í samtali vestra hafs. 

 

Líkast til leyfa Lakers Kobe sjálfum að ráða og þá er líklegt að hann velji treyjuna með tölunni 24 á.   Kobe var fyrstu 10 árin í treyju númer 8 og vann þrjá af fimm titlum sínum í því númeri.  Kobe skipti svo í töluna 24 tímabilið 2006-2007 sem var sama númer og hann var í þegar hann var í menntaskóla. 

Fréttir
- Auglýsing -