Síðastliðinn föstudag mættust Þór Akureyri og Breiðablik í epískum slag í 1. deild karla. Tvíframlengja varð leikinn þar sem heimamenn í Þór höfðu að lokum sigur. Undir lok þriðja leikhluta skorar Breiðablik rosalega körfu.
Karfan var reyndar dæmd af eftir að dómarar leiksins höfðu skoðað þetta aftur á myndbandsupptöku en myndarleg var hún engu að síður. Tilþrifin má sjá í videoinu hér að neðan en Thorsport TV lýsti leiknum í beinni á netinu – karfan kemur fyrir á 3.25 mín.