spot_img
HomeFréttirÖruggur sigur stúlknanna gegn Úkraínu

Öruggur sigur stúlknanna gegn Úkraínu

Undir 16 ára stúlknalið Íslands lagði Úkraínu á Evrópumótinu í Konya í Tyrklandi í dag, 65-43. Leikurinn var í umspili um sæti 13 til 16 á mótinu. Ísland mun því leika um 13. sætið gegn sigurvegara viðureignar Bosníu og Búlgaríu kl. 11:30 á morgun.

Atkvæðamest í íslenska liðinu í dag var Sara Logadóttir með 18 stig og 3 fráköst. Þá skilaði Rebekka Steingrímsdóttir 15 stigum, 5 fráköstum, 4 stoðsendingum, 3 stolnum boltum og Hulda Agnarsdóttir 11 stigum, 7 fráköstum, 3 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -