spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaÖruggur heimasigur í Þorlákshöfn

Öruggur heimasigur í Þorlákshöfn

Þór lagði Hött nokkuð örugglega í Þorlákshöfn í kvöld í 9. umferð Bónus deildar karla, 106-84.

Eftir leikinn er Þór í 4.-5. sætinu með 10 stig líkt og Grindavík á meðan Höttur er í 9.-11. sætinu með 6 stig líkt og Valur og ÍR.

Heimamenn í Þór leiddu leik kvöldsins nánast frá byrjun til enda. Eftir fyrsta leikhluta var munurinn 9 stig og þegar í hálfleik var komið munaði 4 stigum á liðunum. Í upphafi seinni hálfleiksins nær Þór svo að skapa þægilegt bil á milli sín og Hattar, en fyrir lokaleikhlutann munar 18 stigum á liðunum. Undir lokin er sigur heimamanna svo aldrei í hættu og að lokum fara þeir með 22 stiga sigur af hólmi, 106-84.

Atkvæðamestir fyrir Þór í kvöld voru Jordan Semple með 15 stig, 11 fráköst, 6 stoðsendingar og Marreon Jackson með 17 stig, 8 fráköst og 9 stoðsendingar. Nýr leikmaður Þórs Nikolas Tomsick kom ágætlega inn í leik þeirra í kvöld, en af bekknum skilaði hann 14 stigum.

Fyrir gestina var Adam Heede-Andersen atkvæðamestur með 20 stig og 7 stoðsendingar. Honum næstur var Justin Roberts með 18 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -