spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaÖruggt hjá Njarðvík gegn Breiðablik

Öruggt hjá Njarðvík gegn Breiðablik

Njarðvík og Breiðablik mættust í æfingaleik í Ljónagryfjunni í gærkvöldi þar sem heimamenn í Njarðvík fóru með öruggan 97-72 sigur af hólmi.

Á heimasíðu Njarðvíkinga segir um leikinn:

Okkar menn í grænu tóku forystu snemma í leiknum en Blikar börðst vel og áttu góða spretti.

Ljónin voru fullskipuð í kvöld að frátöldum Kristni Pálssyni sem er erlendis með íslenska A-landsliðinu. Njarðvíkurliðið heldur svo til Svíþjóðar á fimmtudagsmorgun í æfinga- og keppnisferð.

Eins og vænta mátti var haustbragur á sumum aðgerðum kvöldsins en okkar menn komu til leiks uppi á tánum og vildu gera vel á varnarendanum.

Fréttir
- Auglýsing -