Orri Hilmarsson og Cardinal Stritch Wolves töpuðu í gær fyrir Indiana South Bend í bandaríska háskólaboltanum, 77-71.
Það sem af er tímabili hafa Cardinal Stritch unnið fimm leiki og tapað átján.
Á 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Orri 15 stigum, frákasti og 2 stoðsendingum.
Næsti leikur Orra og Cardinal Stritch er þann 9. febrúar gegn Saint Xavier.