Undir 18 ára drengjalið Íslands lagði Noreg í dag í fyrsta leik Norðurlandamótsins í Kisakallio, 103-76. Leikurinn sá fyrsti af fimm á mótinu, en á morgun etja drengirnir kappi við Danmörk.
Karfan spjallaði við Orra Svavarsson leikmann Íslands eftir að sigurinn var í höfn í Kisakallio. Orri átti góða innkomu af bekknum fyrir Ísland og skilaði 3 stigum, 3 fráköstum og stoðsendingu í leiknum.