spot_img
HomeFréttirOrðið ljóst hvaða lið mætast í þremur af fjórum

Orðið ljóst hvaða lið mætast í þremur af fjórum

13:18

{mosimage}

Arnþór Freyr Guðmundsson var atkvæðamikill fyrir Fjölni 

Nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í þremur af fjórum úrslitaleikjum yngri flokka sem fara fram á morgun í DHL höllinni. Í 10. flokk kvenna er ljóst að Keflavík verður meistari, bara spurning hvort það verður A liðið eða B liðið. Í unglingaflokki kvenna mætast KR og Grindavík og í drengjaflokki Fjölnir og KR.

Það er því einungis í 10. flokki drengja sem ekki er komið á hreint hvaða lið mætast en undanúrslitin fara fram þessa stundina.

KR sigraði Breiðablik örugglega í seinni undanúrslita leik drengjaflokks í gær, 99-63.

Í undanúrslitum 10. flokks kvenna sigraði Keflavík b lið Hauka 47-30 og í hinum undanúrslitaleiknum vann Keflavík a Grindavík 74-34.

[email protected]

Mynd: Snorri Örn Arnaldsson

Fréttir
- Auglýsing -