Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.
- Styrmir Snær Þrastarson er enn orðaður við lið í Subway deild karla og nú er sagt að uppeldisfélag hans í Þór sé búið að blanda sér í baráttuna við Tindastól um að semja við hann
- Þórsarar eru einnig, enn, sagðir á eftir Hilmari Péturssyni sem á síðustu leiktíð lék með Breiðablik, en er upphaflega úr Haukum
- Þá er talið líklegt að Ísak Júlíus Perdue yfirgefi Þór fyrir Hamar í fyrstu deildinni
- Oddur Rúnar Kristjánsson er sagður leita sér að liði í Subway deild karla, en fjögurra ára bann hans endar nú um mitt sumar, talið var næsta öruggt að hann færi í KR, en nú er það ekki talið líklegt
- Álftanes eru sagðir á eftir Sveinbirni Jóhannessyni úr Breiðablik
- Þá er Dúi Þór Jónsson einnig sagður líklegur til þess að ganga til liðs við Álftnesinga
- Einnig er hefur heyrst að Sæþór Elmar Kristjánsson úr ÍR íhugi að færa sig á Álftanesið
- Bandaríski leikmaðurinn Forrest Robinson er sagður undir smásjá nokkurra íslenskra liða, Grindavík, KR og Hauka en hann lék síðast fyrir lið á Maldíveyjum
- Leikmaður Íslandsmeistara Njarðvíkur Lára Ösp Ásgeirsdóttir er sögð skoða möguleika á að halda vestur um haf í bandarískan háskóla
- Njarðvíkurkonur eru einnig sagðar á lokametrunum við það að klára að semja á nýjan leik við portúgalskan framherja sinn Lavína da Silva
- Jóhann Ólafsson er sagður næsta öruggur sem þjálfari Grindavíkur í Subway deild karla á næsta tímabili
- Keflavík eru sagðir í viðræðum við Arnór Daða Jónsson um að hann verði næsti aðstoðarþjálfari liðsins í Subway deild kvenna
- ÍR missti Kristjönu Eir Jónsdóttur þjálfara sinn til Fjölnis nú um helgina, en félagið er sagt vera á eftir Rúnari Ólasyni til þess að fylla skarð hennar fyrir komandi tímabil í Subway deild kvenna
- Systir Kristjönu, leikmaður ÍR, Irena Sól Jónsdóttir er sögð óviss um hvort hún leiki á næsta tímabili
- Íslandsmeistarar Vals eru sagðir á eftir bæði Þóri Guðmundi Þorbjarnarsyni frá Landstede Hammers og Brynjari Þór Björnssyni úr KR
- Þá hefur það heyrst að Hjálmar Stefánsson sé líklegur til þess að ganga aftur í raðir uppeldisfélags síns Hauka
- Miðherji Stjörnunnar Ragnar Nathanaelsson er einnig sagður óviss með hvar hann leiki á næsta tímabili, en bæði komi KR og nýliðar Hauka til greina ásamt uppeldisfélagi hans í Hamri
- Elín Sóley Hrafnkelsdóttir er áfram sögð á heimleið og að hún sé að velja á milli Breiðabliks og Vals fyrir komandi tímabil í Subway deild kvenna
- Ólafur Þorri Sigurjónsson er sagður óviss með hvar hann ætli að spila á næsta tímabili, en hann er þó talinn líklegur til þess að framlengja við Skallagrím
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]