spot_img
HomeFréttirOpnað fyrir skráningar í körfuboltabúðir á Laugarvatni 15. til 18. júlí –...

Opnað fyrir skráningar í körfuboltabúðir á Laugarvatni 15. til 18. júlí – Uppselt á fyrra námskeiðið

Íþróttaakademía Íslands stendur fyrir Körfuboltabúðum á Laugarvatni dagana 15.-18. júlí fyrir krakka fædd 2007-2011.

Á þessu fjögurra daga námskeiði er gist í þrjár nætur í uppábúnum rúmum með fullu fæði.

Æft er tvisvar sinnum á dag auk fyrirlestra en einnig er mikið lagt upp úr skemmtanagildinu og má þar nefna kayak-ferðir, sundlaugapartý, bubblubolta, ratleik, crazy cars og margt fleira.

Sem fyrr eru umsjónarmenn körfuboltabúðanna Rakel Margrét Viggósdóttir og Skarphéðinn Freyr Ingason en þau búa yfir áralangri reynslu úr körfuboltanum.

Lagt er mikla áherslu á gæði og jákvæða upplifun á námskeiðinu okkar og munu reynslumiklir þjálfarar og leikmenn mæta og þjálfa á námskeiðinu ásamt því að halda fyrirlestra.

Fjöldinn allur af hæfileikaríkum þjálfurum og leikmönnum mættu á námskeiðið okkar í fyrra og er skipulag námskeiðsins sumarið 2022 á sömu nótum.

Fyrra námskeiðið þetta sumarið verður 12.-15. júlí, en þar sem það seldist upp á það hefur nú námskeiði verið bætt við frá 15.-18. júlí.

Takmörkuð sæti eru í boði og eru allar nánari upplýsingar á heimasíðu Íþróttaakademíu Íslands www.iai.is, á facebooksíðu Íþróttaakademíunnar eða í gegnum [email protected].

Verð 44.900 kr.

Fréttir
- Auglýsing -