spot_img
HomeFréttirOlsen Olsen leikur mánaðarins

Olsen Olsen leikur mánaðarins

 Olsen Olsen Diner og Karfan.is hafa tekið saman höndum og í vetur verður hægt að tippa á úrslit í einum leik í hverjum mánuði í vetur, ýmist í Dominos deild karla eða kvenna.  Vinningshafi hlýtur að launum veglega máltíð á Olsen Olsen Diner í Reykjanesbæ. 
 
 
Þið getið tippað á leikinn með því að senda á [email protected]  og hafið úrslit sem þið tippið á í “Subject” línunni. ( Subject:  78:78)  Ef úrslit leiksins sem þið tippið á eru ekki í Subject er “atvkæðið” ógilt.   Það verður alltaf vinningshafi, þar að segja ef engin er með rétt úrslit þá vinnur sá sem er næstur úrslitunum.  Ef um jafntefli er að ræða þá verður dregið milli þeirra jafnir voru. Ef leikurinn fer í framlengingu þá skiptir það engu, þú getur spáð leiknum 92:92 og þá skiptir ekki hvernig leikurinn fer. Þetta er spurning um að tippa á hverning staðan stendur eftir 40 mínútur.  Gangi ykkur vel.
 

OKTÓBER 2012 LEIKUR MÁNAÐARINS:

 

SNÆFELL – STJARNAN 18. okt kl 19:15

 


Hægt er að senda úrslit leiksins allt þar til 17:00 þann 18. október.
 
 
Olsen Olsen býður uppá brakandi ferska “báta” í miklu úrvali ásamt því að þar er hægt að fá grillaða hamborgara sem bragðlaukarnir fagna iðulega. Þetta er aðeins brot af því sem hægt er að sporðrenna á staðnum og þykir móðins þessa daganna að panta sér sætukartöflu franskarnar sem hafa verið að slá í gegn. 
Fréttir
- Auglýsing -