spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaÓlöf Helga sendir frá sér yfirlýsingu: Tók klaufalega til orða í hita...

Ólöf Helga sendir frá sér yfirlýsingu: Tók klaufalega til orða í hita augnabliksins

Þjálfari meistaraflokks Hauka, Ólöf Helga Pálsdóttir sendi fyrir stundu frá sér yfirlýsingu þar sem hún harmar ummæli sín.

Í viðtali við Körfuna eftir leik í gær sagði Ólöf að Keflavík hefði lamið á Lele Hardy allan leikinn sem hefði gert þeim erfitt fyrir. Á Vísi sagði hún svo „Það eru þrír leikmenn að lemja á henni á sama tíma en dómararnir dæma ekkert af því hún er svo stór og sterk. Þetta er bara ósanngjarnt og bara svindl.“

Tilkynningu Ólafar má finna í heild sinni hér að neðan:

Vegna ummæla minn eftir leik Hauka og Keflavíkur í Meistarar Meistarana vil ég biðja dómara leiksins innilega afsökunar og koma eftirfarandi orðum á framfæri:

Það var ekki ætlun mín að saka dómara leiksins um svindl. Ég tók klaufalega til orða í hita augnabliksins og sé mjög mikið eftir því. Dómararnir höfðu engin áhrif á úrslit leiksins, heldur sinntu þeir sinni vinnu svo best þeir gátu og það var mjög ósanngjarnt af minni hálfu að draga heilindi þeirra í efa að leik loknum.

Það góða sem ég vil taka út úr þessum leik og eftirmálum er að ég gerði stór mistök í frumraun minni sem þjálfari í efstu deild og mun læra af þeim og vanda mig betur í framtíðinni.

Vil ég einnig nota tækifærið og þakka dómurunum fyrir góð og uppbyggileg samskipti á meðan á leiknum stóð og eftir hann og vona að þetta upphlaup muni ekki hafa áhrif á okkar samstarf í framtíðinni.

Virðingarfyllst, Ólöf Helga Pálsdóttir
Fréttir
- Auglýsing -