Laugardaginn 23. febrúar næstkomandi fer fram öldungamót Þórs í körfubolta. Leikið verður í íþróttahöllinni á Akureyri og spilað í tveimur aldurhópum karla 30+ og 40+.
Ef næg þátttaka verður fyrir hendi er möguleiki á keppni hjá konum, leikið verður þá í einum flokki, 28+.
Skráningargjald er kr. 3000,- á mann og 500 kr. fyrir þá sem taka munu þátt í vítakeppninni. Skráningar og frekari upplýsingar gefur Eiríkur Sigurðsson í síma 892-3166 og á [email protected]
Nánar á www.thorsport.is