spot_img
HomeFréttirÓlafur Rafnsson afhenti Spánverjum Evrópumeistaratitilinn

Ólafur Rafnsson afhenti Spánverjum Evrópumeistaratitilinn

 
Ólafur Rafnsson, forseti Fiba Europe, afhenti í gærkvöld Spánverjum verðlaun sín er þeir urðu Evrópumeistarar. Ólafur afhenti leikmönnum Spánar gullpeninga sína ásamt Dalia Grybauska, forseta Litháens, og Felipe, krónprins Spánar. www.kki.is greinir frá.
Eftir að leikmenn höfðu fengið gullpeningana var komið að því að lyfta evrópumeistarabikarnum sjálfum á loft. Var fyrirliði Spánar kallaður fram, Juan Carlos Navarro, en hann eftirlét það félaga sínum í spænska liðinu Felipe Reyes. Tók hann við bikarnum úr höndum Ólafs og bikarinn fór á loft við mikinn fögnuð troðfullrar íþróttahallarinnar í Kaunas.
 
Fréttir
- Auglýsing -