spot_img
HomeFréttirÓlafur Már til liðs við Fjölni

Ólafur Már til liðs við Fjölni

00:31 

{mosimage}

Ólafur Már Ægisson hefur ákveðið að skipta yfir í Fjölni og leika með þeim í vetur. Ólafur hefur átt við meiðsli að stríða í hné og ekki náð sér á strik með KR.  

Ólafur Már hóf að æfa körfu mjög ungur í minnibolta hjá KR, hann var síðan í meistaraliði KR árið 2000, en haustið eftir sleit hann krossband í hné. Ólafur Már skipti yfir í Val árið 2002, en þar meiddist hann mjög illa á hendi. Ólafur kom aftur í KR eftir stutta fjarveru hjá Val, en hann sleit þá aftur krossbönd í hné og hefur hann einbeitt sér að því að komast í form. 

 

Ólafur hefur ekki leikið mikið með KR liðinu í þeim leikjum sem liðið hefur leikið á haustinu.  Ólafur sagði í stuttu spjalli við heimasíðu KR, www.kr.is/karfa :  "Ég er að skipta í mesta bróðerni, mig vantar að fá að spila til að komast í gang eftir meiðslin mín.  Ég vona að liðinu gangi vel og allir virði ákvörðun mína." 

 

Frétt og mynd af www.kr.is/karfa

Fréttir
- Auglýsing -