Ólafur Björn Gunnlaugsson og Florida Southern Mocs töpuðu í gærkvöldi fyrir Saint Leo Univeristy í bandaríska háskólaboltanum, 90-99.
Það sem af er tímabili hafa Mocs unnið sex leiki og tapað tíu.
Á 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ólafur 15 stigum, 4 fráköstum og 3 stoðsendingum.
Næsti leikur Mocs er komandi laugardag 15. janúar gegn Nova Southeastern.