Styrmir Snær Þrastarson og Union Mons lögðu Antwerp Giants í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu í dag, 79-73.
Á 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Styrmir Snær 10 stigum, 4 fráköstum, stoðsendingu, 2 stolnum boltum og 2 vörðum skotum.
Eftir leikinn er Mons í 7. sæti deildarinnar með fjóra sigra og þrjú töp það sem af er.