Elvar Már Friðriksson og PAOK lutu í lægra haldi gegn AEK í grísku úrvalsdeildinni í dag, 99-91.
Á rúmum 32 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 18 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum.
PAOK eru eftir leikinn í 8. sæti grísku úrvalsdeildarinnar með 38 stig.