Oddur Ólafsson er kominn heim frá Bandaríkjunum og mun klára tímabliði með Hamri í 1. deild karla. Oddur sagði við Karfan.is í dag að hann hefði ekki verið nægilega sáttur við þá hluti sem voru í gangi hjá Birmingham Southern þar sem hann var í skóla.
,,Þetta hentaði mér bara ekki, skólinn var góður námslega séð, reyndar mjög góður en ég var ekki sáttur með körfuboltann,” sagði Oddur sem hefur þegar sótt um nám í viðskiptafræði hér heima við Háskólann í Reykjavík.
,,Ég er ekki búinn að fá svar en ég vonast til að komast í HR núna eftir áramótin. Ég klára svo tímabilið með Hamri og liðið það lítur bara vel út,” sagði Oddur og ljóst að Hvergerðingar eru hér að fá myndarlegan styrk í toppbaráttuna enda Oddur fyrir nokkru getið sér orð sem skæður leikmaður.
Fyrir þá sem vilja sjá meira af Oddi þá er um að gera að mæta á Hamarsleiki nú eða stilla hér inn á karfan.is á aðfangadag þegar við birtum jólakveðjuna 2012 en þar fer Oddur mikinn rétt eins og í kveðjunni 2011.