Selfoss hefur samið við Donasja Scott um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í fyrstu deild kvenna.
Donasja er 27 ára 180 cm bandarískur bakvörður sem kemur til Selfoss frá Castello á Spáni, en hún er nokkuð reynslumikill atvinnumaður sem einnig hefur áður leikið fyrir félög í Lúxemborg, Serbíu, El Salvador og í Rúmaníu.
Samkvæmt fréttatilkynningu Selfoss er leikmaðurinn kominn til landsins og verður því að öllum líkindum með liðinu er þær mæta ÍR komandi laugardag.