spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaNýliðarnir náðu í sigur í Ljónagryfjunni

Nýliðarnir náðu í sigur í Ljónagryfjunni

KR hafði betur gegn Njarðvík í æfingaleik í Ljónagryfjunni, 100-108, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir upphaf Bónus deildar karla sem rúllar af stað í næstu viku.

KR var með tögl og haldir allt frá fyrstu mínútum leiksins. Leiddu með 16 stigum eftir fyrsta leikhluta og 9 stigum þegar liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik. Njarðvíkingar reyndu hvað þeir gátu til að vinna niður forskotið í seinni hálfleiknum, en allt kom fyrir ekki. KR sigraði að lokum með 8 stigum.

Stigahæstur fyrir Njarðvík í leiknum var Dwayne Lautier með 38 stig. Honum næstur var Veigar Páll Alexandersson með 23 stig.

Fyrir KR var Nimrod Hilliard stigahæstur með 26 stig og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson bætti við 25 stigum.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -