spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaNýliðar ÍR semja við fjóra leikmenn

Nýliðar ÍR semja við fjóra leikmenn

Nýliðar ÍR hafa samið við þær Nínu Jennýju Kristjánsdóttur, Elmu Finnlaugu Þorsteinsdóttur, Arndísi Þóru Þórisdóttur og Rebekku Rut Hjálmarsdóttur fyrir komandi átök í Subway deild kvenna.

Leikmennirnir voru allir á mála hjá félaginu er það tryggði sig upp um deild á síðustu leiktíð með sigri gegn deildarmeisturum Ármanns í úrslitakeppni fyrstu deildarinnar. Nýr þjálfari ÍR Ari Gunnarsson sagði við undirskrift samninga:

„Ég er mjög ánægður með undirskrift við þessa leikmenn sem munu spila lykilhlutverk með liðinu í vetur, þarna eru bæði reynslumiklir leikmenn sem hafa spilað stórt hlutverk undanfarin ár, auk yngri leikmanna sem ég hef trú á að geti gert enn og betur á næsta tímabili“

Samkvæmt fréttatilkynningu er meira að frétta af leikmannamálum nýliðanna á komandi dögum.

Fréttir
- Auglýsing -