Grindavík lagði Hamar í kvöld með 96 stigum gegn 77 í Hveragerði í 32 liða úrslitum Geysisbikar karla. Grindavík heldur því áfram í 16 liða úrslit keppninnar á meðan að Hamar hefur lokið keppni.
Karfan spjallaði við Nökkvar Már Nökkvason, leikmann Grindavíkur, eftir leik í Frystikistunni.