NBA deildin hefur sett saman atburðarrás varðandi það hvenær 2019-20 tímabilinu verður aftur komið af stað og það klárað. Samkvæmt Shams Charaania hjá The Athletic vonast framkvæmdarstjóri deildarinnar dam Silver að það verði á næstu tveimur til fjórum vikum sem ákvarðanirnar hvort, hvernig og hvenær tímabilið haldi áfram verði teknar.
Enginn leikur hefur farið fram í deildinni síðan 11. mars síðastliðinn, en það var þá sem að leik var frestað vegna þess að miðherji Utah Jazz, Rudy Gobert, hafði greinst með Covid-19. Síðan þá hefur deildin fundað um framhaldið og hvort sé hægt að klára tímabilið á einn eða annan hátt.
Samkvæmt fréttunum mun deildin enn vera að skoða þann möguleika að nota tvo staði til þess að spila alla leikina. Annars vegar Disney World í Orlando, hinsvegar Las Vegas, þar sem að deildin er vön að vera með sumardeildina sína ár hvert.
Þar sem að ákvörðunin um 2019-20 tímabilið mun ekki koma fyrr en í enaðan maí eða byrjun júní, mun deildin líka vera að ræða það að byrja næsta tímabil, 2020-21, ekki fyrr en í desember.