spot_img
HomeFréttirNM: Annar tapleikur

NM: Annar tapleikur

{mosimage}

(Logi Gunnarsson gerði 24 stig í kvöld) 

Svíar unnu Íslendinga 69-81 á NM karla í Finnlandi í dag. Svíar voru þremur stigum yfir eftir þrjá leikhluta, staðan var 51-54. Ísland var 19-18 yfir gegn eftir 1. leikhluta, en Svíþjóð var yfir í hálfleik 32-34.

Íslenska liðið byrjaði með látum og voru fyrstu fjórar körfur liðsins þriggja stiga skot og komst Ísland í 12-4 en þá tóku Svíar við sér og skoruðu nokkrar körfur í röð. Íslenska liðið leiddi 19-18 eftir 1. leikhluta. Svíar náðu siðan forystu í 2. leikhluta en Friðrik Erlendur Stefánsson varð að fara af velli í upphafi 2. lekhluta með 3 villur. Ísland átti síðast skot fyrri háfleiks en skotið geigaði og Svíar leiddu 32-34 í hálfleik.

Svíar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og náðu tíu stiga forystu um miðbik 3. leikhlutans sem þeir héldu nokkurn veginn út leikhlutann. Forysta Svía hélt nokkuð í 4. fjórðungi en munurinn fór minnst í fjögur stig, en Ísland náði ekki að komast nær. Annan leikinn í röð vantaði herslumuninn til að Íslands jafnaði en allt kom fyrir ekki, tap gegn Svíum 65-81 var staðreynd.

Sigurður Ingimundarson, þjálfari telur að liðið eigi mikið inni, því þrátt fyrir ágæta kafla í þeim tveimur leikjum sem eru búnir þarf liðið að ná að spila heilan leik vel; "Svíar voru ákveðnari mestallan leikinn og spiluðu mjög góða og fasta vörn. Við hefðum mátt spila lengri sóknir á köflum og flæðið í sókninni er eitthvað sem við þurfum að laga. Þetta eru hlutir sem við munum laga í næstu leikjum gegn Noregi og Danmörku."

Næsti leikur er gegn Noregi á morgun kl. 13.30 að íslenskum tíma.

Helstu tölur úr leiknum:

Logi Gunnarsson 24 stig, 3 fráköst, 4 stoðsendingar
Páll Axel Vilbergssob 17 stig, 6 fráköst
Hlynur Bæringsson 6 stig, 4 fráköst, 5 villur
Jakob Sigurðarson 8 stig, 4 fráköst, 1 stoðsending
Magnús Þór Gunnarsson 3 stig, 2 fráköst, 1 stoðsending
Jón Nordal Hafsteinsson 3. stig,
Sigurður Þorvaldsson, 3 stig, 2 fráköst
Friðrik Erlendur Stefánsson, 2 stig, 4 fráköst, 5 villur
Egill Jónasson 1 stig, 4 fráköst, 4 varin skot
aðrir sem spiluðu voru Arnar Freyr Jónsson og Helgi Magnússon.

Frétt af www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -