{mosimage}
(Snorri Örn, KR, einn af burðarásum í U 16 ára liðinu er hér með boltann)
16 ára lið karla tryggði sér þriðja sætið á Norðurlandamótinu með 76-72 sigri á Norðmönnum í dag. Strákarnir töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu en hafa síðan unnið þrjá leiki í röð þar af tvo þá síðustu gegn Norðmönnum. Sigmar Björnsson var stigahæstur í íslenska liðinu en hann skoraði öll 18 stigin sín í fjórða leikhlutanum. Þetta er þriðja árið í röð sem 16 ára lið stráka vinnur til verðlaun, en gullið vannst 2004, silfrið 2005 og svo bronsið í ár.
Íslenska liðið byrjaði frábærlega í leiknum og komst í 18-7 eftir 7 mínútna leik en afar slæmur kafli síðustu þrjár mínútur leikhlutans tapaðist, 0-13. Norðmenn voru því yfir eftir 1. leikhlutann, 18-20. Íslenska liðið tók aftur frumkvæðið í 2. leikhluta og komst í 32-24 en annar slæmur endakafli gerði það að verkum að Norðmenn voru yfir í hálfleik, 32-33.
Norðmenn héldu forskotinu í 3. leikhlutanum og voru yfir, 52-49, fyrir lokaleikhlutann. Ingi Þór Steinþórsson lét strákanna pressa í upphafi fjórða leikhlutans með góðum árangri og þeir skoruðu 12 fyrstu stig fjórða leikhlutans og komust 61-52 yfir. Norðmenn voru ekkert á því að gefast upp og komu sér aftur inn í leikinn en íslenska liðið hélt út og fagnaði þriðja sigri sinum í röð. Allir leikirnir hafa verið jafnir og spennandi og strákarnir hafa sýnt mikinn styrk með að klára þrjá mjög spennandi leiki í röð. Það var aðeins naumt þriggja stiga tap í fyrsta leiknum gegn Finnum hélt strákunum frá úrslitaleiknum.
Sigmar Björnsson fór heldur betur í gang í fjórða leikhlutanum gegn Norðmönnum þegar hann skoraði öll 18 stigin sín en Ísland vann leikhlutann 27-20 og skoraði því allt norska liðið aðeins tveimur stigum meira en Sigmar síðustu tíu mínútur leiksins. Sigmar skoraði 10 þessarra stiga í 12-0 kaflanum fyrstu 2 mínútur leikhlutans.
16 ára karlar, leikur um 3. sætið:
Ísland-Noregur 76-72 (18-20, 32-33, 49-52)
Stig Íslands: Sigmar Björnsson 18, Snorri Páll Sigurðsson 16, Örn Sigurðarson 14, Hjörtur Halldórsson 11, Baldur Ragnarsson 6, Þorgrímur Björnsson 5, Pétur Jakobsson 3, Víkingur Ólafsson 3.
Frétt og mynd af www.kki.is