spot_img
HomeFréttirNjarðvíkingar veðja áfram á Bonneau

Njarðvíkingar veðja áfram á Bonneau

Þrátt fyrir erfið meiðsli, slit á báðum hásinum þá ætla Njarðvíkingar að veðja áfram á Stefan Bonneau á næsta tímabili. Þetta var gert opinbert í færslu á Facebook síðu liðsins þegar tilkynnt var að Haukur Helgi Pálsson framlengdi samning sinn við liðið.   Njarðvíkingar segja í sömu færslu að þeir leiti logandi ljósi af miðherja fyrir komandi tímabil og þó ekki sé um auðugan garð að gresja þá er vissulega risastór biti á markaðnum í Hlyn Bæringssyni en óvitað er hinsvegar hvort hann sé á heimleið frá Svíþjóð.  Augljóslega hljóta lið í sænsku deildinni að vera í sambandi við landsliðsmiðherjann. 

Fréttir
- Auglýsing -