Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur ákveðið að bjóða stuðningsmönnum sínum upp á stórgott tilboð á miðaverði fyrir þá heimaleiki sem eftir eru í deildarkeppninni í Ljónagryfjunni. Miði á samtals 14 heimaleiki karla- og kvennaliðs félagsins á kr. 5000 eða um 360 kr. á hvern leik!