Njarðvík og Keflavík mættust í grannaslag í 8-liða úrslitum í unglingaflokki karla síðastliðinn föstudag. Heimamenn í grænu höfðu öruggan 104-65 sigur í leiknum en fyrir leikinn hafði hvorugt liðið tapað leik í unglingaflokki til þessa. Fjölmennt var á leiknum en rúmlega 200 manns lögðu leið sína í Ljónagryfjuna til að sjá komandi stjörnur stórveldanna leiða hesta sína saman.
Mynd úr safni/ Oddur Birnir Pétursson átti sterkan leik í liði Njarðvíkinga.