Í dag verða tveir ansi mikilvægir leikir á dagskrá. Annars vegar mætast KR og Njarðvík í þriðja leik liðanna í kvöld í DHL höllinni og hefjast leikar kl 19:15. Leikir liðanna hafa hingað til verið hrein unun að fylgjast með og dramatík út í eitt. Framlengingar og sigurkörfur á síðustu sekúndum segja þá sögu til enda. Óneitanlega er þessi leikur gríðarlega mikilvægir báðum liðum.
Í 1. deildinni leika svo í Valsheimilinu, Valsmenn gegn Skallagrím í oddaleik um hvort liðið leikur um sæti í Dominosdeildinni að ári gegn liði Fjölnis. Leikurinn hefst kl 17:00.