Agnar Mar Gunnarsson hefur verið ráðinn þjáflari meistaraflokks kvenna hjá liði Njarðvíkinga fyrir komandi tímabil í 1.deildinni. Agnar er öllum hnútum og handriðum kunnugur í Ljónagryfjunni en þar hefur hann meira og minna alið sinn mann síðustu ár sem þjálfari yngriflokka, aðstoðarþjálfari meistaraflokks og stuðningsmaður allra annara flokka. Í tilkynningu frá UMFN er farið yfir feril Agnars hjá félaginu í hinum ýmsu störfum og sagt að það eru mikil gleði tíðindi fyrir félagið að fá svo áhugasaman og metnaðarsamann einstakling í þjálfarastöðu mfl. kvenna.