spot_img
HomeFréttirNjarðvíkingar fara norður

Njarðvíkingar fara norður

Formenn KKD Tindastóls og Njarðvíkur hafa komist að samkomulagi um að leikurinn sem Tindastóll átti að leika við Njarðvík (í Njarðvík) næstkomandi föstudagskvöld verður leikinn á Sauðárkróki kl.19:15. Frá þessu er greint í tilkynningu frá KKD Tindastóls.
 
 
Í tilkynningunni segir einnig:
 
Er þessi leikur seinni leikur Tindastóls í riðlakeppni Lengjubikarsins. Það verða aðeins þessir tveir leikir hjá Tindastól í riðlakeppninni, þessi og leikurinn við KFÍ. Þór Þorlákshöfn dró lið sitt úr keppni stuttu fyrir mót og átti Tindastóll að fá heimaleik við þá. En þá var komin upp sú staða að Tindastóll átti ekki neinn heimaleik í riðlakeppninni. En til að gera langa sögu stutta þá féllust Njarðvíkingar á að færa sinn leik við Tindastól til Sauðárkróks, eiga Njarðvíkingar mikið hrós skilið fyrir það. Það er gömul saga og ný að ótrúlegustu hluti er hægt að leysa ef viljinn er hafður að vopni.
 
f/h Kkd Tindastóls Stefán Jónsson Formaður
  
Fréttir
- Auglýsing -