Njarðvíkingar hafa þétt raðirnar í teig sínum með því að kynna til leiks Corbin Jackson sem lenti á landinu í morgun. Corbin spilaði með Florida Tech háskólanum og átti þar góðu gengi að fagna í annari deildinni þar sem hann spilaði meðal annars gegn Elvari Friðrikssyni. "Ég náði í kappann í morgun og hann lítur nokkuð vel út. Var valinn síðustu þrjú ár varnarmaður ársins í deildinni (Div II). Þetta er Double-double vél sem er ný útskrifaður." sagði Gunnar Örlygsson formaður kkd í snörpu samtali við Karfan.is
Corbin er rúmlega 100 kg kraftframherji/miðherji sem stendur í 204 cm á hæðina. Corbin var með 15 stig og 10 fráköst á leik hjá Flordia Tech síðasta árið sitt og varði 2 skot á leik. Corbin mætti sem fyrr segir til landsins snemma í morgun ásamt fjölskyldu sinni, konu og 1 árs gamalli dóttur.
Njaðrvíkingar tefla því fram tveimur bandarískum leikmönnum í vetur en Stefan Bonneau mun einnig koma til landsins á næstu dögum.