spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaNjarðvík semur við fyrrum leikmann Keflavíkur

Njarðvík semur við fyrrum leikmann Keflavíkur

Njarðvík hefur samið við Brittanny Dinkins um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bónusdeild kvenna.

Brittanny er íslensku körfuboltaáhugafólki mörgum kunn, en hún lék fyrir Keflavík 2017-19 og fyrir Fjölni 2022-23. Hún er þrítug og útskrifaðist frá Southern Mississippi árið 2017 en ásamt Íslandi hefur hún síðan leikið fyrir félög í Þýskalandi, Spáni, Sviss, Chile, Jórdaníu og Egyptalandi.

Fréttir
- Auglýsing -