spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaNjarðvík semur við fimm leikmenn

Njarðvík semur við fimm leikmenn

Njarðvík hefur samið við fimm unga og efnilega leikmenn fyrir komandi átök í Bónusdeild karla.

Rúnar Ingi Erlingsson nýráðinn þjálfari liðsins bætti þá við hópinn tveimur ungum og öflugum leikmönnum úr Fjölni en þeir eru Guðmundur Aron Jóhannesson og Brynjar Kári Gunnarsson. Þeir Sigurbergur Ísaksson, Sigurður Magnússon og Patrik Joe Birmingham sömdu einnig við Njarðvík, en þeir eru uppaldir leikmenn liðsins.

„Hér eru á ferðinni fimm ungir og öflugir leikmenn sem Njarðvík bindur vonir við til framtíðar. Það er vissulega spennandi að fá til félagsins unga og efnilega stráka eins og Guðmund og Brynjar en hér fá þeir frábært tækifæri til þess að efla sína kunnáttu og taka næsta skref á sínum ferli. Sigurður og Sigurbergur eru miklir félagsmenn og hafa líka látið til sín taka í þjálfun á vegum félagsins og Patrik að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Það er ekki bara spennandi að vinna með þessum peyjum því ég skynja það líka á þeim að okkar framtíðarleikmenn eru einnig spenntir fyrir því að taka í notkun nýja og glæsilega Stapagryfju á næstunni,” sagði Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari liðsins.

„Við reyndar höfum verið mjög dugleg við það í Njarðvík og erum líka alltaf mjög stolt af þeim leikmönnum sem við náum að leiðbeina upp úr yngri flokkum og inn í meistaraflokkana. Á komandi leiktíð verðum við með margar nýungar en það sem breytist ekki er að félagið ætlar sér að berjast í fremstu röð eins og alltaf og því vitum við að það verður nóg að gera hjá þessum yngri leikmönnum við að fóta sig innan meistaraflokkanna,” sagði Halldór Karlsson formaður Njarðvíkur.

Fréttir
- Auglýsing -