Einn af öflugustu stuðningsmönnum í Njarðvíkur er nýfermdur ungur maður að nafni Jóhann Guðni Víðisson. Jóhann fermdist á dögunum en hann er með nánast 100% mætingu á leiki í Subwaydeildunum hjá karla- og kvennaliði Njarðvíkur.
Jóhann gefur allt í sölurnar fyrir fánann og UMFN og því ákváðu leikmennirnir Raquel Laneiro, Mario Matasovic, Aliyah Collier, Nico Richotti og þjálfarinn Benedikt Guðmundsson að koma honum á óvart með því að líta við í fermingarveisluna hjá Jóhanni Guðna síðustu helgi og óska honum innilega til hamingju með daginn.