Njarðvík varð um helgina Íslandsmeistari í minnibolta 11 ára drengja í HS Orku höllinni í Grindavík. Sigraði liðið fjóra af fimm leikjum á lokamótinu, en í sætunum á eftir þeim voru Fjölnir, UMFK, Breiðablik, Stjarnan og Hamar. Hér fyrir ofan má sjá mynd af nýkrýndum Íslandsmeisturunum með þjálfara sínum Einari Árna Jóhannssyni.
Mynd / KKÍ