spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaNjarðvík deildarmeistari fyrstu deildar kvenna

Njarðvík deildarmeistari fyrstu deildar kvenna

Njarðvík tryggðu sér deildarmeistaratitlinn í 1.deild kvenna í kvöld með öruggum sigri á liði Grindavíkur 86:58 þegar liðin mættust í Ljónagryfju þeirra Njarðvíkinga. Njarðvík leiddu með 11 stigum í hálfleik en seinni hálfleikur var þeirra eign frá upphafi til enda og lönduðu þær sigrinum og um leið heimavallarrétti í úrslitakeppninni.

Grindavík hóf leikinn af miklu krafti og ákveðið skjálfti í heimastúlkum í Njarðvík.  3:6 var staðan efri 5 mínútna leik eða allt þar til að Helena Rafnsdóttir setti körfu og fékk víti að auki sem hún setti niður og jafnaði leikinn.  Eftir þetta hófst gríðarlega jafn leikur og mikil barátt frá báðum liðum.  Aldrei var mikið meira en 2-3 stig sem skildu liðin eða allt þar til um 3 mínútur voru til hálfleiks þá skoruðu Njarðvík 8 stig án þess að Grindavík náðu að svara og voru allt í einu komnar í 10 stiga forystu, 33:23.  Þessa forystu náðu Njarðvík að draga með sér inn í hálfleik og rúmlega það í stöðunni 37:26. 
Í seinni hálfleik hömruðu Njarðvíkurstúlku stálið heitt og leiddu með 12 stigum eftir 30 mínútur og þá þegar ákveðin grunnur komin að sigri þeirra þetta kvöldið.  Chelsea Jennings leiddi liðið í skorun og Helena Rafnsdóttir og Kamilla Sól Viktorsdóttir voru einnig grimmar að ráðast á körfuna.  Njarðvík litu í raun aldrei tilbaka eftir þetta heldur gáfu bara í og voru að lokum komnar með 20+ stiga forskot sem að þær héldu svo að mestu allt til loka leiks og lönduðu deildarmeistartitlinum í 1.deild kvenna og vel að því  komnar enda spilað vel í vetur.  Grindavík voru í raun aldrei með nægilega góðar lausnir gegn grimmari vörn Njarðvík þetta kvöldið þrátt fyrir að þær hafi sýnt fína baráttu í sínum leik.  Þetta kvöldið voru Njarðvík einfaldlega sterkari. 

Stigahæst hjá Njarðvík var Chelsea Jennings með 23 stig en næst henni var Helena Rafnsdóttir sem að öðrum ólöstuðum var maður leiksins í kvöld með 19 stig og 9 fráköst. Hjá Grindavík var Hekla Eik Nökkvadóttir stigahæst með 14 stig.

Tölfræði leiks

Myndasafn

Fréttir
- Auglýsing -